Frá Tónlistarskóla Húnaþings vestra

Umsóknum um skólavist þarf að skila skriflega til skólastjóra á netfangið palinaf@skoli.hunathing.is eigi síðar en 1. september n.k. Lokað verður fyrir skráningar fyrir haustönn eftir þann tíma. Gjaldskrá er að finna á heimasíðu Húnaþings vestra undir: Tónlistarskóli. 

Eftirfarandi upplýsingar skulu fylgja umsókninni: 

  • Nafn nemanda og kennitala
  • Heimilisfang og símanúmer
  • Hljóðfæraval (þ.m.t. söngur)
  • Námshlutfall - hálft (30 mín. á viku) eða fullt (60 mín. eða 2 x 30 mín. á viku)
  • Nafn og símanúmer fereldra/forráðamanna/greiðanda þar sem við á.

Hlökkum til að heyra frá ykkur!

Pálína Fanney Skúladóttir