Flott verkefni í smíði

Virkilega gaman að kíkja við í smíði hjá Ásgeiri og sjá flottu verkefnin sem nemendur eru að vinna.
Ásgeir reynir eins og hann getur að endurnýta efnivið og hefur verið duglegur að finna efni sem annars á að farga og leyfir nemendum að koma með hugmyndir að verkefnum. Mjög metnaðarfull og flott vinna hjá Ásgeiri og nemendum. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af nemendum og verkefnum.