Ferð fyrir 9. og 10. bekk laugardaginn 16. mars

Nemendum í 9. og 10. bekk er boðið í Laugardalshöll 16. mars, foreldrafélagið mun sjá um fararstjórn. Um er að ræða Íslandsmót verk- og iðngreina og kynningu frá framhaldsskólum.

Um 15 nemendur í 9. og 10. bekk hafa sýnt áhuga en skráningarfrestur er til hádegis miðvikudaginn 13. mars. Nemendur skrá sig í skólanum.

Farið verður frá skólanum kl. 8:00 á laugardag og komið heim síðdegis.

Um viðburðinn:

Fræðsluaðilar kynna fjölbreytt námsframboð á framhaldsskólastigi og fram fer keppni á Íslandsmóti iðn- og verkgreina. Boðið er upp á ýmsa viðburði, kynningar og ekki síst að prófa, fikta, snerta og smakka. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að kynna sér allt nám á framhaldsskólastigi á einum stað.

33 framhaldsskólar alls staðar af landinu kynna fjölbreytt námsframboð sitt. Nemendur, kennarar og náms- og starfsráðgjafar munu svara spurningum um námsframboð, félagslíf, inntökuskilyrði og annað sem gestir vilja vita um nám og störf.

30 iðn-, verk- og tæknigreinar taka þátt í Mín framtíð 2019. Flestar greinarnar eru með keppendur á Íslandsmóti iðn- og verkgreina. Unga fólkið sýnir rétt handbrögð og tækni sinnar greinar um leið og það tekst á við krefjandi verkefni og spennuna sem fylgir því að keppa. Sigurvegarar fá margir hverjir tækifæri til að keppa í EuroSkills að ári.

Einnig verðaá svæðinu: BMX BRÓS, Erasmus +, Félag náms- og starfsráðgjafa, Fagkonur, Heimavist MA og VMA, Iðan fræðslusetur, Iðnú, Kvasir - samtök símenntunarmiðstöðva, SÍF samband íslenskra framhaldsskólanema, Rafmennt, Reykjavík FabLab, Verksmiðjan RÚV og Team Spark.

Í boði verður m.a. að helluleggja, klippa, flétta, krulla eða slétta hár, teikna grafík í sýndarveruleika, splæsa net, fara í ratleik, fara á ýmis örnámskeið, mæla blóðþrýsting, planta fræjum, þrívíddarprentun, smíða, prófa vélmenni, bora, sauma á iðnaðarsaumavél, leysa þrautir og fá verðlaun, sjá mjaltir og rúningu og að taka þátt í að útbúa lengstu blómaskreytingu sem gerð hefur verið á Íslandi.

 

http://www.verkidn.is/