Erasmus+ verkefnið Climate Challenge Adventure: Kynning í matsal skólans

Grunnskóli Húnaþings vestra og Selasetrið bjóða öllum áhugasömum á kynningu í tengslum við Erasmus+ verkefnið Climate Challenge Adventure. Skólinn og Selasetrið hafa tekið þátt í þessu spennandi verkefni síðustu tvö árin.

Á viðburðinum munum við deila reynslu okkar, lærdómi og þeim árangri sem náðst hefur í verkefninu.

Upplýsingar um viðburðinn:

  • Hvar: Matsal Grunnskóla Húnaþings vestra

  • Hvenær: Mánudaginn 26. október

  • Klukkan: 13:20

 

Láttu sjá þig ef þú vilt:

  • Fá innsýn í hvað Erasmus+ er.

  • Fræðast um þau tækifæri sem felast í Erasmus+.

  • Heyra hvað þátttakendur hafa lært af ferlinu og verkefninu.

  •  

Viðburðurinn er opinn öllum.

Hlökkum til að sjá ykkur.

 

Grunnskóli Húnaþings vestra & Selasetur Íslands