Enginn skólaakstur á morgun, miðvikudag

Enginn skólaakstur verður á morgun, miðvikudaginn 11. mars 2020 vegna veðurspár . Samkvæmt veðurspá er gul viðvörun á morgun með hríðarveðri og lélegum akstursskilyrðum.

Kennsla verður samkvæmt stundaskrá í skólanum og kennarar setja inn á mentor í heimavinnuáætlun það sem unnið er svo nemendur í dreifbýli geti nýtt tímann vel.

Samræmdu prófi í 9. bekk er jafnframt frestað til föstudags.