Enginn skólaakstur í dag, miðvikudag en skólinn opinn

Enginn skólaakstur verður í dag, miðvikudaginn 8. janúar 2020 vegna veðurspár. Skólinn verður opinn en þeir foreldrar á Hvammstanga sem ætla að halda börnum sínum heima eru beðnir um að senda tölvupóst á grunnskoli@hunathing.is eða hringja í síma 4552900. Það er mikilvægt til að vita hverjir eiga að vera í skólanum og til að áætla fjölda í mat. 

Veðurspá er rysjótt þegar líður á morguninn og því eru foreldrar eru því beðnir um að fylgjast með heimasíðu eða facebook síðu skólans. Ef foreldrar verða beðnir um að sækja nemendur verður sent sms.