- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
(DRÖG)
Reglur um kosningar til stjórnar nemendafélags Grunnskóla Húnaþings vestra
1. gr.
Stjórn nemendafélags Grunnskóla Húnaþings vestra kallast Nemendaráð.
2. gr. Formannskjör
Formaður er kjörinn til eins árs af nemendum 8. og 9. bekkjar. Formaður situr í 10. bekk.
3. gr. Fulltrúakjör
Nemendaráð skipa fulltrúar hvers bekkjar sem eru kjörnir til eins árs af nemendum viðkomandi bekkjar. Úr hverjum bekk situr einn fulltrúi úr nemendaráði og annar til vara. Í 10. bekk sitja tveir fulltrúar og tveir til vara.
4. gr. Kjörgengi fulltrúa
Þeir frambjóðendur teljast kjörgengir sem ekki hafa gerst brotlegir við skólareglur.
5. gr. Kjörseðlar
Umsjónarkennari skal prenta kjörseðla með nöfnum kjörgengra frambjóðenda. Kjörseðill skal bera nöfn allra kjörgengra frambjóðenda til fulltrúa þess bekkjar. Nemendur skulu merkja við tvö nöfn fulltrúaefna á kjörseðli.
Sé merkt við færri eða fleiri nöfn en talið er hér að ofan telst kjörseðill ógildur. Kjörseðill telst ógildur ef seðillinn er merktur eða notaður á annan hátt.
6. gr. Framkvæmd kosninga
Kosningar skulu fara fram í maímánuði ár hvert hér eftir í 4., 5., 6., 7. 8. og 9. bekk. Haustið 2019 skal þó kjósa í september.
Atkvæði skulu brotin tvíbroti og skilað í þar til gerðan kjörkassa.
Þegar allir bekkir hafa kosið skal kjósa um formann í 8. og 9. bekk.
7. gr. Endurskoðun og gildistaka
Reglur þessar skulu sæta endurskoðun árlega og vera kynnt skólastjórn og nemendum eigi síðar en mánuði fyrir kjördag. Reglur þessar öðlast gildi er þau hafa verið birt á heimasíðu Grunnskóla Húnaþings vestra og staðfest af skólaráði.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is