- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
UN Women á Íslandi býður ykkur hjartanlega velkomin á viðburðinn Milljarð rís í Hofi þann 17. febrúar kl. 12-13. Í ár heiðrum við minningu Birnu Brjánsdóttur. Tökum höndum saman og berjumst gegn kynbundnu ofbeldi með væntumþykju, hlýju og dansi.
Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem konur þurfa ekki að óttast ofbeldi og áreiti fyrir það eitt að vera konur.
Í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur hafa konur hér á landi stigið fram og lýst þeim veruleika sem þær búa við. Þeim ótta og óöryggi sem þær finna fyrir á götum úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forðast augnsamband, velja ákveðnar götur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og símanum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Þessi veruleiki er þó síður en svo aðeins bundinn við Reykjavík. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim.
Hátt í 13 þúsund manns hafa komið saman undanfarin fimm ár og dansað víða um landið. Í ár pússum við dansskóna hér á Hvammstanga og mun Dj Heiðar gera lagalista sem sér til þess að dansinn duni.
Taktu daginn frá! Við skorum á starfsmannahópinn að fjölmenna í félagsheimilið og dansa saman af krafti með gleði og hlýju að leiðarljósi fyrir Birnu Brjánsdóttur sem kvaddi þennan heim of snemma.
Staðreyndir um kynbundið ofbeldi
Mætum, dönsum og gefum ofbeldi fingurinn!
#fokkofbeldi
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is