Danskennsla

Á morgun fimmtudag hefst danskennsla hjá nemendum skólans. Þeir fá danskennslu á fimmtudögum og föstudögum í 4 vikur. 

Jón Pétur ætlar einnig að bjóða foreldrum og öðrum fullorðnum upp á danskennslu á Gauksmýri fimmtudagana 9., 16. og 23. febrúar kl. 20:00 alla dagana.

Verð fyrir kennslu fullorðinna er kr. 1500 á einstakan og kr. 2500 fyrir tvístakan ( par/hjón).