Verklagsreglur - drög - vegna beiðna til nemendaverndarráðs

Verklagsreglur vegna beiðna til nemendavendarráðs

drög í mars 2018

 

Þessar verklagsreglur eru settar til þess að auka skilvirkni og draga úr biðlistum sem hafa myndast vegna beiðna hjá nemendaráði.

 

 

Greiningar

  • Staða nemenda er skoðuð hjá öllum kennurum viðkomandi með skriflegri samantekt (töflu).
  • Þroskaþjálfi eða sérkennari sjá um forgreiningu og skila niðurstöðum til nemendaverndarráðs.
  • Próf/forgreiningartæki: (verður skoðað af Ester, Jennýju og Ingveldi)
  • Beiðnir um þroskamat eru metnar út frá fyrirliggjandi gögnum og/eða greiningum.

 

Sérkennsla

  • Sértæk námsúrræði
    • Staða nemenda er skoðuð hjá öllum kennurum viðkomandi með skriflegri samantekt (töflu).
  • Talmeinafræðingur.
    • Ef nemendur falla undir viðmið Sjúkratrygginga Íslands eru beiðnir samþykktar.
    • Ef nemendur falla ekki undir viðmið Sjúkratrygginga Íslands hefur skólinn milligöngu um talmeinaþjónustu og foreldrar greiða samkvæmt gjaldskrá viðkomandi talmeinafræðings.

 

Líðan

  • Skólahjúkrunarfræðingur
  • Náms- og starfsráðgjafi (stefnt að því að hafa náms- og starfsráðgjafa frá og með næsta hausti)

 

 

 

Kvíði

  • Greinandi skimunarpróf sem sérkennari/þroskaþjálfi/skólahjúkrunarfræðingur leggja fyrir.
  • Skólahjúkrunarfræðingur
  • Ef þörf er fyrir sálfræðiþjónustu eða frekari meðferð er vísað til heilsugæslu.
  • Alvarleg mál sem bregðast þarf við tafarlaust eru skoðuð með félagsþjónustu.

 

Sálfræðiþjónusta

  • Foreldrar geta óskað sálfræðiþjónustu – viðtalstíma og skólinn hefur milligöngu um það og foreldrar greiða fyrir sálfræðitíma samkvæmt gjaldskrá viðkomandi sálfræðings.
  • Foreldrar geta leitað beint til heilsugæslu um sálfræðiþjónustu í gegnum heimilislækni.
  • Alvarleg mál sem bregðast þarf við tafarlaust eru skoðuð með félagsþjónustu.

 

 

Athugasemdir eða fyrirspurnir við drög að verklagsreglum er til 15. apríl 2018. Athugasemdir berist á netfangið grunnskoli@hunathing.is.