Valgreinar 2021-2022

Nemendur í 7. - 9. bekk þurfa nú að velja greinar í vali fyrir næsta vetur. Hér að neðan er tengill á valblaðið sem er rafrænt og þar eru einnig stuttar lýsingar á valgreinum. 

Athugið að um hugmyndalista er að ræða svo það er ekki víst að valgrein verði kennd.  Það veltur á því hvort nægur fjöldi nemenda velji og að hæfur kennari fáist. Því er mikilvægt að velja 8 valgreinar til að fá góða mynd af því sem flestir hafa áhuga á.

Skila þarf valblaðinu rafrænt í síðasta lagi 7. maí, að öðrum kosti er ekki víst að hægt verði að taka það til greinar við ákvörðun um valgreinar.

VALBLAÐ 2021-2022

Einnig má skoða valgreinalistann hér á pdf formi.