Skólaslit og val í maí

Skólaslit og starfsnám

Skólaslit verða þriðjudaginn 2. júní kl. 12:00 í íþróttamiðstöð.  Foreldrar eða forráðamenn mega mæta á skólaslit. Ekki er gert ráð fyrir öðrum aðstandendum þar sem gert er ráð fyrir að fjöldatakmörkun fullorðinna verði 200. Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur.

Frístund verður opin á starfsdegi föstudaginn 29. maí frá 8:00  - 14:00.

Frístund verður opin frá 8:00 – 12:00 þriðjudaginn 2. júní.

Athugið að skrá verður nemendur sérstaklega þessa daga í tölvupósti grunnskoli@hunathing.is. Sumarfrístund hefst miðvikudaginn 3. júní. Skráning í sumarfrístund hefst í þessari viku og verður kynnt sérstaklega á heimasíðu.

Minnt er á að nemendur í 8. og 9. bekk eiga að velja fyrir síðustu vikuna í maí. Annað hvort velja þau dagskrá í skólanum eða starfsnám. Foreldrar þurfa sjálfir að sjá um að finna starfsnám fyrir nemendur ef nemendur velja það. Dagskrána í skólanum má sjá hér að neðan: