- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Þær fréttir voru að berast að starfsmaður Grunnskóla Húnaþings vestra hefði greinst með Kóronaveirusýkingu. Í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis fellur skólahald niður um óákveðinn tíma.
Foreldrar og starfsmenn þess bekkjar sem viðkomandi starfsmaður starfar í verða látnir vita um þær ráðstafanir sem gera þarf en starfsmaðurinn er sem betur fer ekki alvarlega veikur.
Það verður því ekkert skólahald á morgun, miðvikudag 18. mars. Farið verður yfir stöðuna með fulltrúum sóttvarnalæknis og foreldrar og starfsmenn upplýstir í kjölfarið um framhaldið.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is