Jólafrí

Dagurinn í dag var mjög ljúfur og nutu nemendur og starfsmenn samverunnar.

Það er vissulega skemmtilegt að geta loks haldið Litlu jól hátíðleg án hafta vegna Covid og í nýju húsnæði sem rúmar alla vel.

Veðrið hefði vissulega mátt vera betra en við stjórnum því víst ekki.  Við viljum sérstaklega þakka jólasveinunum sem kíktu á okkur í dag.  Þeir voru einu orði sagt frábærir, hressir og skemmtilegir og fengu krakkana með sér í allskonar húllum hæ.

Við viljum nýta tækifærið og óska nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og vonum að þið hafið það gott í fríinu.  Hlökkum til að sjá nemendur aftur 3. janúar en minnum jafnframt á að Frístund er lokuð í jólafríinu.

Svipmyndir frá deginum má sjá hér.