Hvað er framundan?

26. mars 2020

Foreldrar og forráðamenn

Nú erum við stödd á 10. degi í sóttkví í skólanum og margt áhugavert hefur verið gert í samskiptum nemenda og starfólks í gegnum ýmsa netmiðla. Úrvinnslusóttkví er enn í gildi og ekki komin niðurstaða í hvað hún stendur lengi.

Skólastjórnendur funda daglega með öllu starfsfólki og fara yfir verkefni, samskipti og nám og líðan einstakra nemenda.

Hugurinn er farinn að leita til 31. mars þegar sóttkví á starfsmenn skólans og nemendur fellur niður og margar spurningar hafa vaknað í því efni um hvort og hvernig á að skipuleggja skólahald í skólanum þessa fjóra daga fyrir páskafrí. Lokadagsetning úrvinnslusóttkvíar hefur auðvitað mikil áhrif á þá ákvörðun. Það er ljóst að einstaka starfsmenn munu ekki geta mætt til starfa í skólanum vegna undirliggjandi sjúkdóma eða COVID-19 smits sem og nemendur. Það er a.m.k. ljóst að ekki verður hægt að taka á móti öllum nemendum í einu á sama deginum og skipta yrði starfsfólki og nemendum eftir dögum. Ég er í raun bara að lýsa hugsunum mínum um framhaldið og koma því til ykkar að óvissan er enn til staðar um framhaldið. Ábendingar og hugleiðingar foreldra eru vel þegnar til að safna í sarpinn – þetta þurfum við að skoða í sameiningu sem samfélag.

Á morgun, föstudag, verður „öðruvísi“ dagur hjá öllum nemendum skólans og umsjónarkennarar munu senda nánari upplýsingar. Í heildina má segja að foreldrum og nemendum verða gefnar hugmyndir til að velja úr og aðstæður á hverju heimili ráða því hvort föstudagurinn er undirbúinn í sjálfstæðri vinnu nemenda eða í samveru með foreldrum. Hér að neðan má sjá lista yfir þessi verkefni.

Skólastjóri

 

Yngsta stig

Miðstig

Elsta stig

Aðstoða við heimilisstörf

Græja morgunmat, hádegismat, kvöldmat

Græja morgunmat, hádegismat, kvöldmat

Baka köku

Baka köku

Baka köku

Taka upp myndbandskveðju og senda á vini eða ættingja sem búa annars staðar

Sinna einhverjum heimilisstörfum

Sinna einhverjum heimilisstörfum

Föndra, t.d. finna origami á youtube

Búa til myndband: Dagur í lífi …, Matreiðsluþáttur o.s.frv.

Búa til myndband: Dagur í lífi …, Matreiðsluþáttur o.s.frv.

Einfaldar tilraunir, sjá link fyrir neðan

Taka upp myndbandskveðju og senda á vini eða ættingja sem búa annars staðar

Taka upp myndbandskveðju og senda á vini eða ættingja sem búa annars staðar

Fjölskyldugöngutúr

Prjóna

Prjóna

Góðverk dagsins

Einfaldar tilraunir, sjá link fyrir neðan

Einfaldar tilraunir, sjá link fyrir neðan

Komdu foreldrum á óvart á jákvæðan hátt

Undirbúa ratleik fyrir fjölskylduna

Taka upp förðunar og/eða hárgreiðsluvideó

Lærðu á hljóðfæri, skoða youtube

Taka upp tölvuleikjamyndband

Taka upp tölvuleikjamyndband

Spila við fjölskylduna

Taka upp fræðslumyndband, t.d. leggja á hest, leysa rubiks, tening, life hacks

Taka upp fræðslumyndband, t.d. leggja á hest, leysa rubiks, tening, life hacks

 Vinna verkefni af skátasíðunni. Sjá link að neðan.

Fjöskyldugöngutúr

Fjöskyldugöngutúr

 Bangsagönguferð, leitað að böngsum í gluggum

Búa til kahoot fyrir fjölskylduna

Búa til kahoot fyrir fjölskylduna

 

Góðverk dagsins

Góðverk dagsins

 

Komdu foreldrum á óvart á jákvæðan hátt

Komdu foreldrum á óvart á jákvæðan hátt

 

Lærðu á hljóðfæri, skoða youtube

Lærðu á hljóðfæri, skoða youtube