Bekkjarfundur 3. bekkjar

Bekkjarfundur 3.bekkjar 27.október

1.       Byrjað á þakkarhring og höfðu allir eitthvað til að þakka fyrir.

2.       Rætt um umgengni í fatahengi og skólanum almennt og ætla nemendur að passa sig betur.

3.       Kennari talaði um matarsóun og að svakalega miklum mat sé hent í mötuneyti. Rætt um að betra sé að fá sér minna á diskinn í       einu og fara frekar aftur ef manni langar í meira.

4.       Kennari hrósaði nemendum fyrir hjálpsemi og hvað þau eru öll fljót til að hjálpa ef eitthvað kemur upp á hjá einhverjum. Nemendur eru mjög snögg, öll sem eitt, að hjálpa ef einhver missir eitthvað í gólfið o.þ.h.