9. fundur matsteymis

Matsteymi 009 fundur 12. febrúar 2020

Mættir:

Sigurður Þór, Eydís Bára, Hafdís Brynja, Borghildur

  1. Ytra mat. Farið yfir starfsáætlun í tímaröð.

Gera þarf tilfærsluáætlun við skólalok og milli skóla

Eftir á að uppfæra vinnsluskrá vegna útprentunar á gögnum úr mentor við skólalok og á flutningi milli skóla.

Vinna móttökuáætlun fyrir nemendur sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda

  • Verklag nemendaverndarráðs vegna beiðna og umfang þjónustu . Þarf að uppfæra að litlu leyti og verður tekið fyrir á nemendaverndarráðsfundi á morgun.
  • Unnið hefur verið verklag um gerð einstaklingsnámskrár og birt á heimasíðu.

Huga að því að nemendur séu með í ráðum við gerð einstaklingsnámskráa þegar við á.

  • Unnið hefur verið verklag um gerð einstaklingsnámskrár og birt á heimasíðu.

Þjálfa nemendur markvisst í að setja sér markmið og nýta í náminu.

  • Innleiðing leiðsagnarmats á síðustu þremur árum leggur áherslu á þessa þætti. Unnið er að því að samræma námsmat á mentor.is og Google classroom til að styrkja leiðsagnarmatið.

Fjölga verkefnum þar sem nemendum gefst kostur á að tengja námið sínu áhugasviði.

  • Unnið er að auknum möguleikum á þessu sviði í gegnum Google classroom. Einnig er unnið að því að setja upp val með öðrum hætti þar sem hver önn tengist tilteknu áhugasviði.

Vinna að því að ná stöðugleika í samræmdum prófum í fjórða og sjöunda bekk og bæta árangur í prófunum á elsta stigi.

  • Endurskoðað verður verklagið „Markviss yfirferð samræmdra prófa“. Úrvinnsla Skólapúlsins á samræmdum prófum verður nýtt við þá vinnu.

Fundargerð upplesin og samþykkt.