Bekkjarþing

Fyrstu bekkjarþingin voru haldin í dag og gengu þau vonum framar. 1. og 2. bekkur boðuðu til þings og unnu með spurningar um skólastarfið. Það var sérstakt gleðiefni að sjá hversu margir foreldrar, forráðamenn, ömmur, afar og systkini komu til þess að taka þátt í vinnunni. Það verður spennandi að halda áfram með þessa vinnu í fleiri bekkjum.