Bekkjarfundur hjá 2. bekk

Rætt var um samskipti innan bekkjarins, hvernig við tölum hvert við annað og hvernig við komum fram.

Allir eru að æfa sig í að hrósa hvort öðru og þau eiga að láta vita þegar eitthvað fallegt er sagt við þau.

Einnig eiga þau að æfa sig heima.

Vikan hefur gengið sérlega vel, nemendur eru vinnusamir, jákvæðir og duglegir.