Bekkjarfundur 4. bekkjar

Á bekkjarfundi í gær 23. sept. var rætt um í hverju nemendur vildu bæta sig í vetur og það mátti auðvitað snúast um allt milli himins og jarðar. Nemendur tóku mjög virkan þátt og allir svöruðu án mikillar umhugsunar í hverju þeir vildu verða betri og nefndu 2 - 3 atriði og voru líka mjög spennir að heyra í hverju kennarinn og stuðningsfulltrúinn vildu bæta sig.