Bekkjarfundur 4. bekkjar

Fundargerð 4.bekkjar 3.nóvember 2022
# Farið yfir hverjir vilja vera í hvaða hlutverkum í leikriti og óskir nemenda skráðar niður.
# Rætt um komandi viku og farið yfir stundatöflu sem Ellý lét nemendur hafa með skipulagi næstu viku.
# Nemendur ræddu um að öll samskipti gangi vel, þótt árekstrar hafi komið upp, tekið er á öllu strax.
# Kennari benti á slæma umgengni í fatahengi og að erfitt sé að þrífa þar vegna þess að föt, skór og töskur eru út um allt gólf. Nemendur lofa bót og betrun.