Bekkjarfundur 10. bekkjar

 

 

  • Rætt um að geyma ferð sem átti að fara í haust til góða.  Fínt að fara síðar í vetur..

  • Rætt um símareglur

  • Rætt um ferðir í KVH og að það er ekki leyfilegt að borða sælgæti eða drekka neitt annað en vatn innan skólans.

  • Rætt um ruslatunnur á leiðinni frá KVH í skóla, þær eru alltaf það fullar að rusl fýkur um allt og vilji var hjá krökkunum fyrir því að hitta Ragnheiði Jónu og ræða þetta vandamál.  Umsjónarkennari sendi póst á Ragnheiði Jónu varðandi þetta.

  • Gangbrautin, þau vilja láta endurskoða það að þau gangi alltaf yfir á gangbraut þar sem starfsfólk fer oftast styttri leiðina og þau fara það líka - væri fínt að hafa það í reglum.

  • Mötuneytið, of lítið í morgunmat, lélegt úrval af ávöxtum, vilja ekki brúna ávexti og væru til í perur,melónur og meira úrval ávaxta miklu oftar.  Ekki gaman að fara í morgunmat og ekkert úrval.  Erfitt að fá ekki að skammta sér sjálf(fullur skilningur á ástandinu og að það þarf að skammta) en stundum er sett allt of mikið á diskinn og svo eru þau skömmuð fyrir að henda mat.

  • Rætt um söfnun sem þau standa fyrir til að komast í 10.bekkjar ferðalag næsta vor.  Samþykkt að fara á suðurland og umsjónarkennara falið að athuga með gistingu á Hótel Rangá.

  • Máney og Alexander eru umsjónarmenn vikunnar.

  • Skipt um sæti.