Bekkjarfundur 1. bekkjar

16. janúar var haldinn bekkjarfundur hjá 1. bekk.

Við ræddum um lykilorð vikunnar sem eru „hjálpa þér“. Nemendur komu með ýmsar hugmyndir um hvað væri hægt að gera heima og í skólanum til að hjálpa öðrum og sýna hjálpsemi.