- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
21. Almenna landskeppnin í efnafræði fór fram í framhaldsskólum landsins fimmtudaginn 3. mars. Alls tók 51 nemandi þátt, úr fimm skólum. Anna Elísa Axelsdóttir 2V varð í 5. sæti í keppninni en 15 efstu er boðið að taka þátt í úrslitakeppni sem verður haldin í Háskóla Íslands í byrjun apríl. Sigurvegari keppninnar er nemandi í MR og auk hans og Önnu Elísu komust áfram nemendur úr MR, MH og Tækniskólanum. Fjórum efstu keppendum úrslitakeppninnar verður boðið að taka þátt í 5. Norrænu efnafræðikeppninni sem haldin verður á Íslandi dagana 4.-8. júlí og 54. Alþjóðlegu Ólympíukeppninni í efnafræði sem haldin verður í Kína, dagana 10. - 20. júlí.
Til hamingju Anna Elísa.
Fréttin er tekin af heimasíðu Menntaskólans á Akureyri
https://www.ma.is/is/frettir/anna-elisa-i-urslitakeppni-i-efnafraedi
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is