Allir starfsmenn og nemendur grunnskóla í sóttkví.

Ákvörðun hefur verið tekin í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis að allir nemendur og starfsmenn Grunnskóla Húnaþings vestra fari í sóttkví til og með 30. mars 2020. 

 

Í framhaldinu munu allir starfsmenn og foreldrar nemenda fá tölvupóst um þetta og leiðbeiningar um sóttkví.

 

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að sóttkví tekur aðeins til þessa hóps. Aðrir á heimilinu sem ekki voru útsettir fyrir smitinu þurfa EKKI í sóttkví.

 

 

Smitrakningarteymi almannavarna og sóttvarnalæknis vill árétta eftirfarandi:

Einstaklingur fer í sóttkví ef hann hefur:

·       Mögulega umgengist einstakling með nýja kórónuveirusýkingu

·       Verið á áhættusvæði en er ekki ennþá veikur sjálfur.

Aðrir á heimilinu sem ekki voru útsettir fyrir smitinu þurfa EKKI í sóttkví. Ef um ungt barn er að ræða er nauðsynlegt að fullorðinn einstaklingur fari í sóttkví með barninu.

Mikilvægt er að skipuleggja umgengni á heimilinu þannig að þeir sem eru í sóttkví og hinir séu sem allra minnst á sömu svæðum íbúðarinnar. Í sameiginlegum rýmum eins og á salerni og í eldhúsi þarf að gæta sérstaks hreinlætis.

Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá þeim degi sem einstaklingur var nálægt smituðum einstakling. Ef einstaklingur í sóttkví fær einkenni á hann að hringja í heilsugæsluna sína næsta virka dag til að fá sýnatöku.

Frekari leiðbeiningar vegna sóttkvíar í heimahúsi er að finna á https://www.covid.is/flokkar/sottkvi og https://www.landlaeknir.is/

Vinsamlega kynnið ykkur leiðbeiningarnar vel. Ef spurningar vakna má hafa samband við netspjall á www.heilsuvera.is