57. fundur nemendaráðs 17. maí 2022
Mættir:Róbert Sindri, Bríet Anja, Saga Ísey, Hrafney Björk, Eydís Bára, Borghildur, Sigurður.
-
Kosningar til nemendaráðs. Kjósa þarf í 4. - 9. bekk í nemendaráð fyrir næsta skólaár. Tveir fulltrúar eru kosnir í 9. bekk. Ákveðið að kosningu skuli vera lokið í síðasta lagi 27. maí og niðurstöðum skilað til skólastjórnenda.
-
Húsgagnamál. Nemendaráð vill fá fleiri húsgögn fyrir nemendur.
-
Skápar. Umræða um skápa fyrir nemendur á unglingastigi og hvort þörf sé á þeim. Gott væri að ræða það í bekkjum. Hugmynd kom fram um að nemendur í fleiri bekkjum gætu óskað eftir skáp í stað þess að úthluta.
-
Útigæsla. Rætt um nauðsyn þess að starfsmaður sé ávallt í námunda við fótboltavöllinn og komi til aðstoðar ef þörf krefur.
Fundi slitið kl. 10:37