- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Matsteymi 019 fundur
10. febrúar 2021 kl. 12:30
Mættir:
Sigurður Þór, Eydís Bára, Hafdís Brynja, Ellen Mörk, Borghildur og Margrét Hrönn
Unnið eftir matsáætlun
Farið yfir umbótaþátt 1.1 - Samvirkni í stefnumótun.
Flestum umbótaþáttum hefur verið hrint í framkvæmd. Rætt var sértaklega um framvindu þriggja þátta sem eru í vinnslu:
Huga að því að allir hagsmunaaðilar taki þátt í stefnumótun skólans. Menntastefna.
Vinnu við menntastefnu miðar lítið áfram eftir að verkefnastjóri fór í leyfi
Unnið samhliða gerð skólanámskrár og menntastefnu. Allir hagsmunaaðilar fái tækifæri til að hafa áhrif á sérstöðu skólans. Sérstaða skólans komi fram í inngangi skólanámskrár. Sérstaða skólans: Áhersla á kynningu á héraði í námi, góður stuðningur við nemendur með frávik með stuðningsfulltrúum, móttaka fósturnemenda, samstarf við skólana í A-Húnavatnssýslum í kennslu og endurmenntun, samstarf við leikskóla, söngvarakeppni, árshátíð þar sem allir nemendur koma fram á sviði, danskennsla, samstarf við tónlistarskóla, samstarf við íþrótta- og tómstundafélög, þáttaka nemenda í atvinnulífi héraðsins.
Gerð nýrrar skólanámskrár er hafin með aðkomu allra kennara skólans. Þeim var gert að skila kennsluáætlunum í upphafi skólaársins þar sem fram komu viðmið aðalnámskrár. Þessi viðmið verða grunnur að nýrri skólanámskrá sem mun gefa góða og ígrundaða mynd af áherslum, starfsháttum og hæfniviðmiðum hvers árgangs. Hefur verið birt á heimasíðu. Einnig verður lykilhæfni fléttuð inn í skólanámskrá hvers bekkjar og fags.
Fundi slitið kl. 13:05
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is