Vísnagáta

Í keppni förum eftir öll, (leikreglur)

ansi smá með stengjum. (leikbrúða)

Spilum öll við óp og köll, (leikgleði)

ungum börnum tengjum. (leikskóli)

 

Hver lína táknar eitt orð, forskeyti orðanna er sameiginlegt öllum fjórum og er lausnarorðið...LEIK