Vesturlandsriðill sigraður 2. árið í röð

Lið Grunnskóla Húnaþings vestra sigraði í skólahreysti rétt í þessu. Frábær árangur tvö ár í röð hjá kröftugum krökkum. Liðið sigraði með 51 stigi og næst á eftir kom Grundaskóli með 43,5 stig.

Guðmundur Grétar var efstur í upphífingum og Leonie hékk lengst allra í keppni dagsins.

Liðið skipa Guðmundur Grétar Magnússon, Hilmir Rafn Mikaelsson, Ingunn Elsa Apel Ingadóttir og Leonie Sigurlaug Friðriksdóttir.

Það er því ljóst að liðið mun keppa í lokakeppninni þann 8. maí. Til hamingju nemendur og íbúar í Húnaþingi vestra!