Vegna ferðalaga til og frá Íslandi

Nú líður senn að jólafríi í skólum og munu hugsanlega einhverjir leggja land undir fót og heimsækja ástvini erlendis eða fá til sín gesti erlendis frá. Við þær aðstæður er mikilvægt að vera meðvituð um þær aðgerðir sem eru í gildi við landamærin á Íslandi þegar komið er heim á ný. Farþegar geta farið í sýnatöku við komuna til landsins og seinni sýnatöku 5 dögum seinna til að stytta sóttkví. Sýnataka er ókeypis.  Treysti fólk sér einhverra hluta vegna ekki í sýnatöku við landamærin þarf viðkomandi að vera í sóttkví í 14 daga. Sóttvarnalæknir hefur hvatt alla að fara í sýnatöku á landamærunum og tökum við heilshugar undir þau skilaboð.

Við hvetjum forsjáraðila að halda börnum á leik- og grunnskólaaldri heima þann tíma sem sóttkví varir og beðið er eftir niðurstöðu úr seinni sýnatökunni.  Tilgangurinn með því að halda börnum heima er að vernda skólastarf, þar sem veiran er því miður í miklum uppgangi víða um heim og því aukin hætta á að fólk smitist á ferðalögum erlendis. Fari fólk ekki í sýnatöku á landamærunum þarf það að fara í 14 daga í sóttkví og mælst er til þess að börnin séu einnig í sóttkví ásamt forsjáraðilum.

Eins og við höfum séð margoft í haust þegar komið hefur upp smit í skólum að það hefur mikil áhrif á skólastarf. Í kjölfarið þurfa oft mörg börn og fjölskyldur þeirra að fara í sóttkví sem er íþyngjandi aðgerð sem raskar daglegu lífi. Hægt er að minnka á líkurnar á slíkum atburðurðum með því að fylgja tilmælum sóttvarnalæknis og einn þáttur í þeim er fara í sýnatöku á landamærunum við komuna til Íslands.

Með von um góðar viðtökur og ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár!

Virðingarfyllst,

Sigurður Þór Ágústsson og Guðrún Lára Magnúsdóttir