Þjóðleikhús barnanna

Þjóðleikhúsið bauð börnum í elstu deild leikskólans og yngstu deildum grunnskólans í heimsókn í leikhúsið.  Að þessu sinni var það brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik sem sýndi börnunum í Félagsheimili Hvammstanga  sjö stutta leikþætti. Handunnar trébrúður hans og heillandi töfrabrögð kalla fram eftirvæntingu og kátínu ungra leikhúsgesta.