Söngvarakeppni 2018

Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra verður haldin fimmtudaginn 25. janúar 2018.

 Þeir sem vilja taka þátt sendi tölvupóst til Valdimars þar sem fram kemur nafn, bekkur og lag, valdihg@gmail.com

í síðasta lagi 15. desember 2017.

Ekki verður tekið á móti skráningum eftir þann tíma.

 Sérstök verðlaun verða fyrir frumlegasta atriðið í hvorum flokk (dæmt fyrir búninga, skemmtun, spaug og spé)

 Nemendur í 4. - 10. bekk geta tekið þátt.  Aðeins er keppt í hvorum flokki ef atriði eru 3 eða fleiri.  

 Sama lagið má ekki syngja oftar en einu sinni, sá sem fyrstur skráir sig með lag fær að syngja það, þeir sem á eftir koma verða þá að velja annað lag.

 

Samkvæmt ákvörðun nemendaráðs er ekki skylda að vinningslag keppi á Samfés. Sá sem sigrar söngvarakeppnina má keppa á Samfés en þarf þess ekki. Velji sigurvegari að keppa ekki á Samfés, flyst möguleikinn til 2. sætis og svo koll af kolli. Ef enginn af keppendum vilja keppa á Samfés velur félagsmiðstöð sjálf lag til flutnings.

Einnig áveðið að lágmarks þátttaka verði 3 atriði í hvorum flokk (eldri og yngri).

Nemendur mega keppa í fleiri en einu atriði með öðrum. Nemendur hvattir til að hafa hópatriði.