Skólabyrjun 2017

Skólabyrjun 2017

Skólasetning Grunnskóla Húnaþings vestra verður miðvikudaginn 23. ágúst kl. 12:00 í Íþróttamiðstöð Hvammstanga. Að lokinni skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum sínum til stofu og taka á móti stundaskrám. Foreldrar eru hvattir til að fylgja nemendum í stofur til að fá upplýsingar hjá kennurum um skólastarfið. Skólastjórnendur verða til viðtals eftir skólaslit fyrir þá sem það þurfa. Ekki verður skólaakstur á skólasetningardaginn. Nemendur og foreldrar í 1. bekk fá viðtalstíma fyrir skólasetningu hjá umsjónarkennara.

Stundatöflur eru aðgengilegar á mentor.is frá og með 21. ágúst. Þeir sem vilja stundatöflur í tölvupósti geta sent beiðni um það til skólastjóra. Nemendur í  8. – 10. bekk þurfa að skoða sínar töflur vel, hverja lotu fyrir sig þar sem þær breytast eftir lotum.

Kennsla hefst hjá 1. - 7. bekk  fimmtudaginn 24. ágúst.

Kennsla í valgreinalotum hefst hjá 8. – 10. bekk 24. ágúst. Skoðið stundatöflu nemenda vel þar sem hún segir til um í hvaða valgrein nemendur eru á hvaða tíma í Lotu 1.

Þeir sem þurfa nánari leiðbeiningar hafi samband við umsjónarkennara eða skólastjórnendur.

Nemendur sem skráðir eru í starfsnám eru ekki skráðir í skólaakstur og mat. Ef óskað er eftir mat skal láta skólastjórnendur vita. Ef óskað er skólaaksturs skal biðja um það hjá viðkomandi bílstjóra.

Hægt er að biðja um breytingar á vali til 7. september 2017.

Hagnýtar upplýsingar

Námsgögn

Skólinn sér um öll námsgögn fyrir nemendur í 1. - 10. bekk þeim að kostnaðarlausu (stílabækur, ritföng, reiknivélar ofl.) Foreldrar þurfa samt sem áður að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði ásamt ritföngum til afnota heima fyrir. 

Svefn

Mikilvægt er að nemendur fái nægan svefn og hvíld. Séu þau ekki útsofin og hvíld geta þau ekki notið kennslunnar né sinnt því starfi sem fer fram í skólanum. Þau verða pirruð og þreytt og námsefni fer fyrir ofan garð og neðan. 

Hæfilegur svefntími er talinn

  • Fyrir 5 – 8 ára börn 10 -12 klst. á sólarhring
  • Fyrir 9 – 12 ára börn 10 – 11 klst. á sólarhring
  • Fyrir 13 – 15 ára börn 9 – 11 klst. á sólarhring

Skápar fyrir nemendur

Nemendur í 7. – 10. bekk fá úthlutað nemendaskáp frá skólabyrjun til skólaloka. Nemandinn útvegar sjálfur lás til að læsa sínum skáp.  Nemandi ber sjálfur ábyrgð á sínum lás.

 

Notkun reiðhjóla, hlaupahjóla, hjólabretta og línuskauta

Skólinn ber ekki ábyrgð á hjólum og hlaupahjólum sem nemendur koma á í skólann. Öll mál sem tengjast skemmdum á reiðhjólum/ hlaupahjólum verða foreldrar að gera upp sín í milli. Ekki er heimilt að geyma hjól/ hlaupahjól inni í skólanum.  Öll notkun á þessum tækjum er bönnuð í frímínútum. Óheimilt er að mæta á línuskautum, hjólabrettum og rúlluskóm í skólann. Nemendur mega ekki koma á hjólum í skólann nema með hjálm.

Óskilamunir

Í skólanum safnast mikið af óskilamunum, þar á meðal vandaðar og óslitnar flíkur af yngri jafnt sem eldri nemendum. Ef fatnaður eða aðrar eigur nemenda skila sér ekki heim geta foreldrar komið og fengið að skoða óskilamuni.  Mikilvægt er að merkja allar flíkur nemenda, skófatnað jafnt sem annað. Viku eftir skólaslit er óskilamunum sem ekki hafa verið sóttir komið til Rauða krossins

Frístund

Börn í 1.- 4. bekk skólans eiga kost á að dvelja í Frístund eftir skólatíma dag hvern til kl. 16:00.  Foreldrar nemenda í 5. og 6. bekk geta einnig sótt um vistun innan starfstíma skóla í frístund ef fjöldi leyfir. Frístund starfar einnig alla aðra virka almanaksdaga ársins (nema viðtalsdaga, á skólaslitum, skólasetningu og v. endurmenntunar) frá kl. 8:00 – 16:00. Sumarfrí Frístundar er sambærilegt og sumarfrí leikskólans Ásgarðs ár hvert.

 

Þá daga sem skóli starfar ekki innan skóladagatals (s.s. starfsdaga, jólafrí og páskafrí) þarf að láta umsjónarmann Frístundar vita með 3 daga fyrirvara um vistun þessa daga. Enginn skráist sjálfkrafa í vistun þessa daga og ef enginn er skráður er Frístund lokuð.
Skrá þarf börn í Frístund fyrir allan veturinn með skráningarblaði sem tilgreinir hvaða daga  á að nota. Börn geta ekki byrjað í Frístund fyrr en skráningarblaði hefur verið skilað. Vistun í frístund miðast við mánaðamót, breytingar þurfa að berast fyrir 15. hvers mánaðar til þær taki gildi 1. mánaðar þar á eftir. Í skólabyrjun að hausti geta nemendur komið inn í Frístund með litlum fyrirvara.

Frístund utan starfstíma skóla á sumrin þarf að skrá sérstaklega samkvæmt auglýsingu.

 

Greitt er fyrir Frístund samkvæmt gjaldskrá Húnaþings vestra

 

Eftir sumarfrí Frístundar og leikskóla eiga verðandi nemendur í 1. bekk skólans rétt á vistun.

 

Skóladagatal

Skóladagatal skólans má nálgast á heimasíðu skólans. Skólaárinu er skipt niður í 5 lotur sem merktar eru á skóladagatali. Við upphaf hverrar lotu má gera ráð fyrir breytingum á stundaskrám, þær breytingar birtast á mentor.is. Það er því mikilvægt að foreldrar skoði stundaskrár, námsáætlanir og heimavinnu á mentor mjög reglulega, nemendur í 8. – 10. bekk þurfa að nota mentor.is a.m.k. daglega.

Mötuneyti

Gert er ráð fyrir því að allir nemendur skólans fái morgunhressingu og hádegismat í skólanum og foreldrar greiða fyrir það samkvæmt útgefinni gjaldskrá ár hvert. Þeir sem vilja annað fyrirkomulag láti skólastjórnendur vita.  Mataráskrift er ekki felld niður (vika eða meira) nema foreldrar/starfsmenn óski þess með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.

Hafragrautur er í boði að morgni í skólanum frá kl. 8:00. Ekki þarf að greiða fyrir grautinn en skrá þarf nemendur í hann til að áætla magn.

Umsjónarkennarar 2017-2018

Umsjónarkennarar veturinn 2017-2018 verða sem hér segir:

1. bekkur - Lára Hegja Jónsdóttir

2. bekkur - Laura Ann Howser

3. bekkur - Margrét Hrönn Björnsdóttir

4. bekkur - Þorbjörn Gíslason

5. bekkur  - Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir

6. bekkur - Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir

7. bekkur  - Ragnheiður Sveinsdóttir

8. bekkur - Eiríkur Steinarsson

9. bekkur - Sara Ólafsdóttir

10. bekkur - Þorbjörg Valdimarsdóttir