Öskudagur

Við þökkum fyrirtækjum á Hvammstanga kærlega fyrir snör og örlát viðbrögð í gær á öskudegi þegar fulltrúar þeirra komu hver á fætur öðrum færandi hendi í skólann. Með þessu móti tókst að gera daginn eftirminnilegan og mjög skemmtilegan þrátt fyrir erfið veðurskilyrði.

Nokkrir nemendur komust ekki í skólann í gær en starfsfólk skólans tók frá nammi í poka fyrir þá og þeir nemendur fá sinn hluta þegar þeir koma aftur í skólann, í dag eða síðar eftir atvikum.