Niðurstaða foreldrakönnunar

Niðurstöður skoðanakönnunar meðal foreldra um færslu á matsal sýna að 80% foreldra velja að matsalur verði færður í félagsheimil. Rauði þráðurinn í athugasemdum og öðrum liðum könnunarinnar er þó sá að þessi færsla verði tímabundin og vinna verði hafin við framtíðarskipulag húsnæðis við skólann. Tillagan verður nú tekin formlega fyrir í Byggðaráði.