Mislitir sokkar á Downs deginum

Á fimmtudag er Alþjóðlegi Downs-dagurinn en Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að 21. mars væri alþjóðadagur Downs-heilkennis og með það að markmiði að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leyti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni er orsakað af aukalitningi í litningi 21, þ.e. þrjú eintök af litningi 21 - 21.03.

Fólk um allan heim klæðist mislitum sokkum á fimmtudag til að fagna og sýna samstöðu með margbreytileikanum.