Leyfi í 3 daga eða meira

Leyfi í 3 daga eða lengur skal sækja um til skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra, sem veitt geta leyfið í samráði við umsjónakennara. Athygli skal vakin á því að skv. 15 . grein Grunnskólalaga frá 2008 er öll röskun á námi sem hlýst af leyfum frá skóla á ábyrgð foreldra eða forráðamanna. Þar segir um tímabundna undanþágu barns frá skólagöngu :„Forráðamaður skal sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi á meðan á undanþágu stendur“

Umsjónarkennarar geta eftir sem áður veitt leyfi í allt að tvo daga.

Ef foreldrar óska lengra leyfis fylla þeir út á rafrænan hátt eyðublað á heimasíðu undir flipanum "eyðublöð"  eða með hnappi á forsíðu.

Eyðublaðið má finna hér.

Sýnishorn af eyðublaði.

Eyðublað