Jólaþema á morgun

Á morgun ætlum við að hafa uppbrotsdag og leika okkur saman.

Við ætlum að skera út laufabrauð, borða smákökur, skreyta skólann, syngja og leika okkur í íþróttahúsinu.

Vonandi koma sem flestir jólalega klæddir í jólalegu skapi í tilefni dagsins.