- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
Söngvarakeppnin var haldin í gær með glæsibrag. Þar stigu nemendur á stokk, hver öðrum betri og frambærilegri með stórgóða skemmtun fyrir áhorfendur. Það er ljóst að ekki þarf að hafa áhyggjur af framtíð menningar í Húnaþingi vestra þegar þessir nemendur taka við keflinu.
Sérstakar þakkir fá Valdimar, Guðmundur, Aðalsteinn, Hjörtur og Gunnar fyrir undirspilið, faglega leiðbeiningu og framsetningu á atriðum. Það er ekki sjálfgefið að nemendur í grunnskóla fái svona metnaðarfullan stuðning frá blómlegu tónlistarlífi.
Í yngri flokki sigraði Dagbjört Jóna Tryggvadóttir, Elvar Orri Sæmundsson í öðru sæti og í þriðja sæti voru Ísey Lilja Waage og Valgerður Alda Heiðarsdóttir. Þá fengu Dagbjört Jóna Tryggvadóttir og Einar Örn Sigurðsson verðlaun fyrir sviðsframkomu.
Í eldri flokki sigraði Jóhann Smári Reynisson sem einnig fékk verðlaun fyrir sviðsframkomu. Í 2. sæti var Ásdís Aþena Magnúsdóttir og í þriðja sæti var Anna Rakel Gunnarsdóttir.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju.
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is