Húsgagnahugleiðingar

Skólastjóri fundaði með Jóhanni Smára, Ásdísi Björgu, Ásdísi Aþenu og Rakel Gýgju um möguleika í húsgagnakaupum. Farið var á nokkrar heimasíður og úrval skoðað. Þessir nemendur ætla að skoða úrval sófa, sæta,kubba og grjónapunga í næstu viku og koma með tillögur til nemendaráðs eftir það.

Þeir sem vilja benda nemendaráði á áhugaverðar eða snjallar lausnir í húsgögnum sem taka lítið pláss en rúma marga geta sent ábendingar á netfangið grunnskoli@hunathing.is.