Hagnýtar upplýsingar um skólabyrjun

Skólabyrjun 2018

Skólasetning Grunnskóla Húnaþings vestra verður mánudaginn 27. ágúst kl 12:00 í Hvammstangakirkju.  Að lokinni skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum sínum til stofu og taka á móti stundaskrám. Foreldrar eru hvattir til að fylgja nemendum í stofur til að fá upplýsingar hjá kennurum um skólastarfið. Ekki verður skólaakstur á skólasetningardaginn. Nemendur og foreldrar í 1. bekk fá viðtalstíma fyrir skólasetningu hjá umsjónarkennara.

Stundatöflur eru aðgengilegar á mentor.is frá og með 21. ágúst. Þeir sem vilja stundatöflur í tölvupósti eftir þann tíma geta sent beiðni um það til skólans, grunnskoli@hunathing.is. Nemendur í  8. – 10. bekk þurfa að skoða sínar töflur vel, hverja lotu fyrir sig þar sem þær breytast eftir lotum.

Kennsla hefst hjá 1. - 7. bekk  þriðjudaginn 28. ágúst.

Kennsla í valgreinalotum hefst hjá 8. – 10. bekk 28. ágúst.  Skoðið stundatöflu nemenda vel þar sem hún segir til um í hvaða valgrein nemendur eru á hvaða tíma í Lotu 1.

Þeir sem þurfa nánari leiðbeiningar hafi samband við umsjónarkennara eða skólastjórnendur.

Nemendur sem skráðir eru í starfsnám eru ekki skráðir í skólaakstur og mat. Ef óskað er eftir mat skal láta skólastjórnendur vita. Ef óskað er skólaaksturs skal biðja um það hjá viðkomandi bílstjóra.

Hægt er að biðja um breytingar á vali til 7. september 2018.

Hagnýtar upplýsingar

Námsgögn

Skólinn sér um öll námsgögn fyrir nemendur í 1. - 10. bekk þeim að kostnaðarlausu (stílabækur, ritföng, reiknivélar ofl.) Foreldrar þurfa samt sem áður að sjá börnum sínum fyrir skólatösku, sund- og íþróttafatnaði ásamt ritföngum til afnota heima fyrir. Athugið að nemendur á unglingastigi útvega sjálfir skriffæri og það sem þarf í pennaveskið.

Skólaakstur

Á heimasíðu skólans má finna upplýsingar um tímatöflur skólabifreiða. Þær eru uppfærðar um leið og bílstjórar hafa sent inn nýjar tímatöflur. Nýir skólabílstjórar verða á leiðum 3 og 10. Eyþór Logi Ágústsson muna aka leið 3 og Kristinn Víglundsson leið 10. Skólabílstjórar hafa samband við heimili áður en akstur hefst um nánara fyrirkomulag fyrir nýja nemendur og við aðra ef um breytingar er að ræða frá fyrra ári. Ef eitthvað er óljóst er bent á að hafa samband við viðkomandi skólabílstjóra.

Starfsfólk og bekkir

Skipulag innan skólans verður með þeim hætti að 1. bekkur verður með stofu á 3. hæð, 2. – 5. bekkur á 2. hæð og 6. – 10. bekkur á jarðhæð, 8. – 10. bekkur í norðurálmu. Sú breyting verður á að tveir 9. bekkir verða næsta vetur vegna fjölda nemenda. Ekki er hægt að greina frá umsjónarkennurum fyrr en á þriðjudag þar sem umsóknarfrestur er ekki liðinn um öll störf kennara við skólann. Það er þó hægt að gleðja foreldra og nemendur með því að nokkrar umsóknir hafa þegar borist og því er ljóst að mönnun skólans fyrir veturinn er í höfn. Listi með nýju starfsfólki verður birtur á heimasíðu skólans.

 

Ný persónuverdarlög

Foreldrar munu verða varir við einhverjar breytingar vegna nýrra persónuverndarlaga og verða þær kynntar sérstaklega.

Svefn

Mikilvægt er að nemendur fái nægan svefn og hvíld. Séu þau ekki útsofin og hvíld geta þau ekki notið kennslunnar né sinnt því starfi sem fer fram í skólanum. Þau verða pirruð og þreytt og námsefni fer fyrir ofan garð og neðan. 

Hæfilegur svefntími er talinn

  • Fyrir 5 – 8 ára börn 10 -12 klst. á sólarhring
  • Fyrir 9 – 12 ára börn 10 – 11 klst. á sólarhring
  • Fyrir 13 – 15 ára börn 9 – 11 klst. á sólarhring

Skápar fyrir nemendur

Nemendur í 7. – 10. bekk fá úthlutað nemendaskáp frá skólabyrjun til skólaloka. Nemandinn útvegar sjálfur lás til að læsa sínum skáp.  Nemandi ber sjálfur ábyrgð á sínum lás.

 

Notkun reiðhjóla, hlaupahjóla, hjólabretta og línuskauta

Skólinn ber ekki ábyrgð á hjólum og hlaupahjólum sem nemendur koma á í skólann. Öll mál sem tengjast skemmdum á reiðhjólum/ hlaupahjólum verða foreldrar að gera upp sín í milli. Ekki er heimilt að geyma hjól/ hlaupahjól inni í skólanum.  Öll notkun á þessum tækjum er bönnuð í frímínútum. Óheimilt er að mæta á línuskautum, hjólabrettum og rúlluskóm í skólann. Nemendur mega ekki koma á hjólum í skólann nema með hjálm.

Óskilamunir

Í skólanum safnast mikið af óskilamunum, þar á meðal vandaðar og óslitnar flíkur af yngri jafnt sem eldri nemendum. Ef fatnaður eða aðrar eigur nemenda skila sér ekki heim geta foreldrar komið og fengið að skoða óskilamuni.  Mikilvægt er að merkja allar flíkur nemenda, skófatnað jafnt sem annað. Viku eftir skólaslit er óskilamunum sem ekki hafa verið sóttir komið til Rauða krossins

Frístund

Börn í 1.- 4. bekk skólans eiga kost á að dvelja í Frístund eftir skólatíma dag hvern til kl. 16:00.  Foreldrar nemenda í 5. og 6. bekk geta einnig sótt um vistun innan starfstíma skóla í frístund ef fjöldi leyfir. Frístund starfar einnig alla aðra virka almanaksdaga ársins (nema viðtalsdaga, á skólaslitum, skólasetningu og v. endurmenntunar) frá kl. 8:00 – 16:00. Sumarfrí Frístundar er sambærilegt og sumarfrí leikskólans Ásgarðs ár hvert.

 

Þá daga sem skóli starfar ekki innan skóladagatals (s.s. starfsdaga, jólafrí og páskafrí) þarf að láta umsjónarmann Frístundar vita með 3 daga fyrirvara um vistun þessa daga. Enginn skráist sjálfkrafa í vistun þessa daga og ef enginn er skráður er Frístund lokuð.
Skrá þarf börn í Frístund fyrir allan veturinn rafrænt á heimasíðu skólans sem tilgreinir hvaða daga  á að nota. Börn geta ekki byrjað í Frístund fyrr en skráningarblaði hefur verið skilað. Vistun í frístund miðast við mánaðamót, breytingar þurfa að berast fyrir 15. hvers mánaðar til þær taki gildi 1. mánaðar þar á eftir. Í skólabyrjun að hausti geta nemendur komið inn í Frístund með litlum fyrirvara.

Frístund utan starfstíma skóla á sumrin þarf að skrá sérstaklega samkvæmt auglýsingu.

 

Greitt er fyrir Frístund samkvæmt gjaldskrá Húnaþings vestra

 

Eftir sumarfrí Frístundar og leikskóla eiga verðandi nemendur í 1. bekk skólans rétt á vistun.

 

Skóladagatal

Skóladagatal skólans má nálgast á heimasíðu skólans. Skólaárinu er skipt niður í 5 lotur sem merktar eru á skóladagatali. Við upphaf hverrar lotu má gera ráð fyrir breytingum á stundaskrám, þær breytingar birtast á mentor.is. Það er því mikilvægt að foreldrar skoði stundaskrár, námsáætlanir og heimavinnu á mentor mjög reglulega, nemendur í 8. – 10. bekk þurfa að nota mentor.is a.m.k. daglega.

Mötuneyti

Gert er ráð fyrir því að allir nemendur skólans fái morgunhressingu og hádegismat í skólanum og foreldrar greiða fyrir það samkvæmt útgefinni gjaldskrá ár hvert. Þeir sem vilja annað fyrirkomulag láti skólastjórnendur vita.  Mataráskrift er ekki felld niður (vika eða meira) nema foreldrar/starfsmenn óski þess með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara.