- HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
- Eyðublöð
- Nám & kennsla
- Nemendur og foreldrar
- STEFNUR OG ÁÆTLANIR
- Menntastefna Húnaþings vestra
- FRÆÐSLUEFNI
35. fundur nemendaráðs 13. janúar 2021
Mættir: Heiða Bára Pétursdóttir, Máney Dýrunn Þorsteinsdóttir, Eyrún Una Arnarsdóttir, Ásgerður Ásta Kjartansdóttir, Saga Ísey Þorsteinsdóttir, Sverrir Franz Vinginsson, Aníta Rós Brynjarsdóttir
1. Slagorð gegn einelti
Fulltrúar í nemendaráði ræða eftirfarandi hugmyndir að slagorði skólans gegn einelti í bekkjum . Hver bekkur velur 1-3 slagorð sem þeim líst best á.
Berjumst gegn einelti
Burt með eineltið
E!nelti er BANNAÐ!
Ég er eins og ég er
Einelti er ekki gott
Einelti er ógeð
Eineltislaus skóli-það er okkar skóli
Stöndum saman
Stoppum einelti
Við erum góð við hvert annað
Við leggjum ekki í einelti hér!
4. Ferðir á unglingastigi
Nemendaráð forgangsraðaði nemendaferðum á unglingastigi:
Ferðir sem farnar verða á skólaárinu 2021-2022
Berjaferð 1. - 4. bekkjar
Dagsferð 5. - 7. bekkjar utan héraðs
Reykjaskóli
Skíðaferð
Útskriftarferð 10. bekkjar
Skólahreysti
5. Áskorun um nafnabreytingu
Fræðsluráð hefur áskorunina til skoðunar og hefur lýst vilja til að skoða nánar nýtt nafn á skólann. Til þess hefur fræðsluráð óskað gagna frá skólastjóra um nafnasamkeppni sem fór af stað 2014 en var aldrei lokið.
6. Árshátíð
Rætt um hugmynd um að hafa eitt leikverk á árshátíð sem skipt yrði niður á bekki. Vel tekið í þá hugmynd. 10. bekkur fær ákvðið svigrúm eins og vanalega á árshátíð. Ákveðið að 7. bekkur verði áfram kynnar og með milliatriði. Ekki komin nein hugmynd um hvenær árshátíð verði.
7. Söngvarakeppni
Engin hugmynd um hvenær hún verður haldin. Rætt um að sennilega þarf að ákveða fyrst með söngavarakeppni áður en tími fyrir árshátíð verður valinn.
8. Heimanám
Gerð tillaga að því að námsaðstoð verði á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum.
10. Danskennsla
Danskennsla verður alla fimmtudögum og föstudögum. Danssýning verður ekki heimil.
11. Öskudagur
Ekki mögulegt að halda hefðbundinn öskudag þar sem allir koma saman í einu í félagsheimili. Einnig vangaveltur um hvort hægt verði að fara í fyrirtæki vegna sóttvarnarráðstafana. Rifjað upp þegar fyriræki komu með glaðning í skólann vegna veðurs á öskudegi. Nemendur ræði á bekkjarfundi hvernig ætti að hafa fyrirkomulag á öskudegi innan og utan skóla.
12. Skólalóð
Spurt um hönnun á skólalóð og hvort sé gert ráð fyrir körfuboltavelli. Skólastjóri mun spyrjast fyrir um málið.
Næsti fundur verður miðvikudaginn 20. janúar kl. 10:00. Nemendur í 8. - 10. bekk fari kl. 9:45 í morgunmat
Kirkjuvegi 1
Sími 455-2900 Frístund: 895-2915 |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455-2900 / grunnskoli@skoli.hunathing.is