Freyja Lubina sigraði stærðfræðikeppni 9. bekkjar

Freyja Lubina Friðriksdóttir sigraði í stærðfræðikeppni 9. bekkjar sem fram fór á Sauðárkróki í dag. 14 nemendur á Norðurlandi vestra komust áfram í úrslit á dögunum og sigraði Freyja sem áður sagði í dag. Við óskum henni innilega til hamingju með glæsilegan árangur.