Enn meiri lenging á akstri um Vesturhóp

Aksturstími á leið 6 um Vesturhóp hefur verið lengdur um samtals 20 mínútur á hvorri leið vegna ástands vegar 711. Ekki er mögulegt að aka um veginn nema mjög rólega. Lengingin varir þangað til að lagfæringar hafa verið gerðar á veginum. Heldartími barna í skólabílnum hefur því lengst um 40 mínútur á dag.