Enginn skólaakstur á morgun en skólinn opinn

Á morgun föstudaginn 13. desember verður ekki skólaakstur en skólinn verður opinn. Ekki verður hefðbundin kennsla eftir stundaskrá en verkefni útbúin fyrir þá sem mæta.  Foreldrar á Hvammstanga sem kjósa að senda börnin ekki til skóla láti skólann vita í síma 455-2900 eða á netfangið grunnskoli@hunathing.is í fyrramálið. Það er mikilvægt vegna áætlunar í mat.

Ekki verður farið í matsal þar sem erfitt verður að tryggja öryggi í þröngum snjóruðningum á götunum en útbúið verður morgun- og hádegishressing til neyslu í skólanum.