Bekkjarfundur 5. bekkjar

Rætt um það sem er framundan næstu daga fram að jólafríi.

Fórum yfir það hvernig fyrirmyndar bekkjarfélagi er, skrifuðum það á töfluna og nú hangir það á blaði uppi á vegg.

Snjórinn er mættur og við ræðum það að vera viðbúin snjókasti og allskonar uppákomum varðandi snjó og snjóhúsagerð á skólalóðinni. Ræddum það að hafa sér svæði á skólalóðinni þar sem snjókast væri í boði og þar kemur enginn sem ekki vill fá í sig snjóbolta. ​