Á Hvammstanga vantar okkur kennara í leikskóla og grunnskóla.

 

Við leikskólann Ásgarð eru lausar stöður leikskólakennara / leiðbeinanda í 100% störf. Ein staða til frambúðar og ein staða tímabundið.

Við Grunnskóla Húnaþings vestra eru lausar tvær 80-100% stöður kennara. Annars vegar umsjónarkennara á miðstigi sem einnig kennir á unglingastigi og hins vegar textíl- og myndmenntakennari.

Við leitum að einstaklingum með:

  • Tilskilda menntun.
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileika
  • Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi

 

Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Í samræmi við jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störfin. Upplýsingar umskólastarfið má finna á www.asgardur.leikskolinn.is og www.grunnskoli.hunathing.is

Hugmyndafræði leikskólans byggir á kenningum Mihaly Csikszentmihalyi, flæði.

Umsóknafrestur er til 15. júní 2018 næstkomandi og þurfa viðkomandi að hefja störf við leikskóla sem fyrst en við grunnskóla frá 15. ágúst. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast skrifstofu Húnaþings vestra, Ráðhúsinu, Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is / grunnskoli@hunathing.is

Frekari upplýsingar veitir Þórunn Helga Þorvaldsdóttir skólastjóri leikskóla í síma 451-2343 / 866-1565 og Sigurður Þór Ágústsson skólastjóri grunnskóla í síma 455-2900 / 862-5466.