Gjöf frá starfsmönnum Tengils

Starfsmenn Tengils komu í gær og gáfu skólanum stöðvunarmerki fyrir gangbrautarvörðinn. Þeir höfðu tekið eftir því að ekki allir ökumenn virtu gangbrautarvörð þegar nemendur nálgast gangbruatina. Merkið er einnig með ljósi sem hægt er að nota þegar skammdegið rýkir.

Við þökkum þessa höfðinglegu gjöf sem eykur öryggi nemenda á leið til og frá matsal.